Markvörðurinn Victor Valdes gæti æft með Þýskalandsmeisturum FC Bayern þegar hann jafnar sig af meiðslum sínum.
Valdes meiddist illa á hné á síðustu leiktíð í leik með Barcelona, en hann yfirgaf síðan félagið þegar samningur hans rann út í sumar.
Framtíð hans er enn í lausu lofti þar sem ekkert varð úr vistarskiptum hans til Monaco eins og búist hafði verið við. Marca greinir frá því að viðræður hafi átt sér stað á milli umboðsmanns Valdes og Bayern.
Manuel Neuer er aðalmarkvörður Bayern og yrði því erfitt fyrir Valdes að fá margar mínútur á Allianz Arena.
Athugasemdir