banner
   mán 27. júlí 2015 08:30
Björgvin Stefán Pétursson
Benfica vill fá Dani Osvaldo
Dani Osvaldo með Southampton
Dani Osvaldo með Southampton
Mynd: Getty Images
Benfica mun veita Real Betis samkeppni um undirskrift Dani Osvaldo, þennan fyrrum leikmann Inter Milan og Southampton.

Osvaldo sem að er ítalskur landsliðsmaður er laus allra mála hjá Southampton og getur því farið frítt til annars liðs.

Umboðsmaður þessa 29 ára gamla leikmanns sagði fyrir stuttu að Betis hafi verið í sambandi vegna Osvaldo.

En fjölmiðlar ytra segja nú að Betis sem að er nýkomið aftur upp í deild þeirra bestu á Spáni muni þurfa að berjast við porúgölsku risana um undirskrift Dani Osvaldo.

Benfica er í leit að sóknarmanni og hafa þeir nú mikinn áhuga á Dani Osvaldo.
Athugasemdir
banner
banner
banner