Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 27. júlí 2016 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Alexandre Pato til Villarreal
Pato gerði lítið merkilegt hjá Chelsea.
Pato gerði lítið merkilegt hjá Chelsea.
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Alexandre Pato mun ganga í raðir Villarreal frá Corinthians á næstunni eftir misheppnaða lánsdvöl hjá Chelsea á síðasta tímabili.

Brasilíski landsliðsmaðurinn fór til Chelsea á láni undir lok janúarmánaðar en skoraði einungis eitt mark í deildinni og yfirgaf félagið 1. júlí. Corinthians hafði gert ráð fyrir því að Pato yrði áfram á Stamford Bridge á næstu leiktíð en Antonio Conte vildi ekkert með hann hafa.

Villarreal mun kaupa þennan 26 ára framherja, sem sló í gegn ungur að árum með AC Milan áður en verulega fór að fjara undan honum.

Marca segir að spænska félagið muni borga 3 milljónir evra fyrir 60 prósenta hlut í Pato. Kemur hann til með að fylla skarð Denis Suarez sem gekk í raðir Barcelona frá Villarreal á dögunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner