Bournemouth hefur keypt varnarmanninn unga Brad Smih frá Liverpool en þetta var staðfest í dag.
Bournemouth borgar þrjár milljónir punda fyrir Smith en kaupverðið gæti hækkað upp í sex milljónir punda síðar meir.
Smith er 22 ára gamall Ástrali en hann spilaði fjóra leiki með Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Hann er annar leikmaðurinn sem Bournemouth kaupir frá Liverpool í sumar en Jordon Ibe fór sömu leið á fimmtán milljónir punda.
Athugasemdir