mið 27. júlí 2016 15:00
Alexander Freyr Tamimi
Denis Suarez: Ætla að nýta tækifærin
Denis Suarez var öflugur hjá Villarreal.
Denis Suarez var öflugur hjá Villarreal.
Mynd: Getty Images
Denis Suarez segist ekki vera hræddur við að fá ekki tækifæri í byrjunarliði Barcelona eftir að hann sneri aftur til félagsins frá Villarreal fyrir tímabilið.

Nær alltaf þegar Barcelona selur leikmenn úr B-liði sínu til annarra félaga setur liðið kaupklásúlu í samningana. Í tilfelli Suarez ákvað félagið að nýta sér klásúluna eftir að hann átti frábært tímabil með Villarreal.

„Undirbúningstímabilið gengur vel. Það er öðruvísi en ég hafði hjá Sevilla og Villarreal því hér erum við að vinna á vellinum allan tímann og leikmaður með minn stíl kann að meta það," sagði þessi 22 ára gamli framherji.

„Luis Enrique krefst mikils af okkur og talar stanslaust við okkur. Hann hefur talað mikið við mig og sýnt að hann hefur trú á mér. Ég efaðist aldrei um að koma aftur því ég vildi alltaf gera það. Við hvern þann sem hefur efasemdir segi ég að Barcelona er besta lið í heimi til að spila fyrir og vera hluti af."

„Í bestu liðunum eru alltaf margir leikmenn að berjast um hverja stöðu. Ég kom hingað til að hjálpa og berjast fyrir því að spila eins oft og ég get. Ég reyni að nýta tækifærin sem best."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner