Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
   mið 27. júlí 2016 22:11
Ívan Guðjón Baldursson
Kristján Guðmunds: Dómararnir misstu hausinn í lokin
Kristján Guðmundsson.
Kristján Guðmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eftir gott gengi að undanförnu tapaði Leiknir 2-1 gegn HK í Kórnum í kvöld. Kristján Guðmundsson var alls ekki sáttur við varnarleik sinna manna í leiknum.

Lestu um leikinn: HK 2 -  1 Leiknir R.

„Við áttum alveg möguleika á að skora fleiri mörk en það sem skiptir sköpum er losarabragur í varnarleiknum í fyrri hálfleiknum. Við vorum ekki nægilega samstilltir og tókum ekki á skarið þar," segir Kristján.

Halldór Kristinn Halldórsson var ekki með í leiknum í kvöld vegna meiðsla og var hans sárt saknað í vörn Leiknis.

„Þegar vantar lykilmenn er erfitt að fylla skörð þeirra. Það er erfitt að standa af sér allar tæklingar og hann var bólginn eftir Akureyri. Ég vona að hann verði tilbúinn í næsta leik."

Leiknismenn voru allt annað en sáttir við að fá ekki vítaspyrnu í uppbótartíma þegar brotið var á Óttari Bjarna í teignum.

„Hann rífur í hann þegar hann er í skotinu. Það sést langar leiðir."

Strax eftir það fær Óttar Bjarni á sig aukaspyrnu og annað gult spjald, fyrra gula kom eftir mótmæli þegar Helgi Mikael dómari dæmdi ekki víti.

„HK-ingurinn hreinlega hoppar á hann og hendir sér niður. Það er eins og aðstoðardómarinn hafi dæmt þetta. Þetta var léleg dómgæsla. Dómararnir misstu hausinn og þoldu ekki pirringinn, hávaðann og lætin í leiknum."

Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner