Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 27. júlí 2016 07:30
Alexander Freyr Tamimi
Matic er ekki til sölu
Matic mun ekki yfirgefa Chelsea.
Matic mun ekki yfirgefa Chelsea.
Mynd: Getty Images
Antonio Conte, nýráðinn stjóri Chelsea, segir að Nemanja Matic fari hvergi í sumar og telur hann að Serbinn geti orðið einn besti miðjumaður heims.

Matic var magnaður er Chelsea varð Englandsmeistari tímabilið 2014-15 en átti alls ekki gott tímabil í fyrra frekar en liðsfélagar sínir. Missti hann oft á tíðum sæti sitt til Jon Obi Mikel en gæti öðlast endurnýjun lífdaga undir stjórn Conte.

„Matic er mjög mikilvægur leikmaður fyrir mig og mína fótboltalegu hugmyndafræði," sagði Conte á blaðamannafundi fyrir vináttuleik gegn Liverpool.

„Hann veit þetta og ég er í skýjunum með hugarfar hans og hegðun og ég sé að hann er tilbúinn að leggja hart að sér. Ég veit að með dugnaði getur hann orðið frábær miðjumaður, einn sá besti í heimi. Hann er ekki til sölu."
Athugasemdir
banner
banner
banner