Orri Sigurður Ómarsson leikmaður Vals var gríðarlega sáttur eftir sigur á Selfyssingum í undanúrslitaleik Borgunarbikarsins. Leiknum lauk með 1-2 sigri Vals en Selfyssignar minnkuðu munninn og Orri viðurkennir stress í kjölfarið.
Lestu um leikinn: Selfoss 1 - 2 Valur
„Já, ég var kominn með Fjölnisleikinn í hugann þegar þeir jöfnuðu á síðustu mínútunni. Það var sætt að landa þessu."
„Selfyssingar eru með frábært lið og þeir eru góðir þar sem styrkleikarnir þeirra eru þannig þetta var ekkert walk in the park."
„Við bjuggumst við því að þeir myndu bakka aðeins á móti okkur en þeir gerðu það ekki, þeir komu bara fullir sjálfstrausts og pressuðu á okkur á fullu."
Bæði lið fengu mjög góð færi í leiknum og hefðu hæglega fleiri mörk getað verið skoruð. Orri tók undir það.
„Við þurfum aðeins að fara að nýta færin okkar betur. Þetta er búið að vera svona í sumar, við fáum milljón færi en skorum bara 1-2. Við þurfum aðeins að fara að bæta þetta."
ÍBV tekur á móti FH í hinum undanúrslitaleiknum en Orri pælir lítið í hvaða liði þeir mæta í úrslitum.
„Ég veit það ekki, mér er alveg sama. Þetta eru bæði frábær lið."
Athugasemdir