Vefsíðan vinsæla 101 Great Goals setti saman topp tíu lista yfir leikmannakaupin í ensku úrvalsdeildinni hingað til. Mörg félög hafa gert stór kaup og það á margt enn eftir að gerast. Fer Paul Pogba til Manchester United?
10. Pierre-Emile Höjbjerg (Bayern M til Southampton, £12.8m) - Tvítugur danskur miðjumaður sem hugsaður er fyrir framtíðina. Lék sinn fyrsta leik fyrir Bæjara 17 ára.
9. Steve Mandanda (Marseille til Crystal Palace, £1.5m) - Á 22 landsleiki með Frökkum og kemur með stöðugleika í búrið hjá Örnunum.
8. Viktor Fischer (Ajax til Middlesbrough, £3.8m) - Skýr skilaboð frá nýliðunum að ekki á að tjalda til einnar nætur. Fischer er 22 ára Dani sem á enn möguleika á að ná langt.
7. Joel Matip (Schalke til Liverpool, frjáls sala) - Kamerúnski miðvörðurinn hávaxni er ekki bara góður skallamaður heldur líka góður í fótunum.
6. Alvaro Negredo (Valencia til Middlesborough, lán) - Kemur með dýrmæta reynslu og gæði í sóknarleikinn.
5. Ilkay Gundogan (Borussia Dortmund til Manchester City, ~£20m) - Frábær leikmaður sem líður ákaflega vel með boltann. Nær vonandi að hrista meiðslavesen alveg af sér.
4. Zlatan Ibrahimovic (PSG til Manchester United, frjáls sala) - Risanafn í deildina. Vonast til að bæta enska titlinum í safnið sitt stóra.
3. Granit Xhaka (Borussia Mönchengladbach til Arsenal, ~£30m) - Týpan af miðjumanni sem Arsenal hefur vantað í mörg ár. Leikmaður sem á bara eftir að verða betri.
2. Henrikh Mkhitaryan (Borussia Dortmund til Manchester United, £26m) - Zlatan fær flestar fyrirsagnir en líklegt er að Armeninn verði áhrifameiri á Old Trafford.
Athugasemdir