Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 27. ágúst 2013 12:36
Magnús Már Einarsson
Heimild: Talksport 
Chelsea sagt hafa hafnað tilboði Liverpool í Mata
Mynd: Getty Images
Talksport heldur því fram að Chelsea hafi hafnað tilboði frá Liverpool um að fá Juan Mata á láni.

Mata hefur lítið spilað með Chelsea í byrjun tímabils og hann var ónotaður varamaður gegn Manchester United í gærkvöldi.

Samkeppnin um sæti í Chelsea liðinu mun aukast ennþá meira í vikunni þegar Willian kemur til félagsins.

Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hefur sagt að Mata sé mikilvægur hluti af hópnum og að Spánverjinn sé ekki til sölu.

Talksport segir því að Mourinho hafi ekki verið lengi að segja nei þegar Liverpool óskaði eftir að fá leikmanninn á láni.
Athugasemdir
banner
banner
banner