Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 27. ágúst 2014 13:00
Magnús Már Einarsson
Balotelli með Liverpool gegn Tottenham
Mario Balotelli.
Mario Balotelli.
Mynd: Liverpool
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, segir að Mario Balotelli sé klár í slaginn fyrir leikinn gegn Tottenham á sunnudag.

Balotelli kom til Liverpool frá AC Milan á 16 milljónir punda í fyrradag og Rodgers segir að hann sé í flottu formi.

,,Hann hefur spilað þrjá 45 mínútna leiki á undirbúningstímabilinu. Hann er ekki í fullu leikformi en hann lítur vel út," sagði Rodgers.

,,Við höfum skoðað hann. Læknaliðið hefur unnið með honum og hann er mjög góðu formi. Hann er til í að leggja hart að sér og hann verður í hópnum um helgina."
Athugasemdir
banner
banner