banner
   mið 27. ágúst 2014 23:55
Elvar Geir Magnússon
Benítez ekki í Meistaradeildina: Enginn einn sökudólgur
Benítez sár og svekktur.
Benítez sár og svekktur.
Mynd: Getty Images
Rafa Benítez mistókst að koma Napoli í Meistaradeildina í kvöld. Liðið komst yfir gegn Athletic Bilbao en afar lélegur varnarleikur gerði að verkum að spænska liðið vann 3-1 og einvígið samtals 4-2.

„Við tókum forystuna en á skömmum tíma gerðum við dýrkeypt mistök og misstum stjórnina á leiknum. Öll þrjú mörk þeirra komu eftir slæm mistök hjá okkur," sagði svekktur Benítez eftir leikinn.

„Mistökin gerðu að verkum að Athletic öðlaðist sjálfstraust á meðan við töpuðum okkar. Kenni ég einhverjum einum um? Nei, svona mistök geta gerst. Þetta var ekki eðlilegt en getur þó gerst."

„Það eru allir sárir og svekktir hjá okkur með þessa niðurstöðu. En Athletic er frábært lið og við verðum að horfa fram veginn. Það er deildarleikur hjá okkur um helgina."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner