Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 27. ágúst 2014 20:51
Magnús Már Einarsson
Jamie Carragher gerir grín að óförum Manchester United
Færslan sem Carragher setti á Twitter.
Færslan sem Carragher setti á Twitter.
Mynd: Twitter
Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool, virðist ekkert leiðast að ófarir Manchester United haldi áfram í byrjun á nýju tímabili.

Manchester United tapaði 4-0 gegn C-deildarliði MK Dons í gær eftir að hafa ekki náð að landa sigri í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins í ensku úrvalsdeildinn.

Carragher hefur svarað spurningum frá fólki á Twitter í kvöld og þegar Ewan, stuðningsmaður Manchester City, bað Carragher um að segja sér brandara þá stóð ekki á svarinu.

,,Man United?" svaraði Carragher en svarið hefur vakið mikla lukku hjá stuðningsmönnum Liverpool, Manchester City og fleiri félaga.
Athugasemdir
banner
banner
banner