Inter íhugar að gera tilboð í japanska landsliðsmanninn Shinji Kagawa sem hefur verið í aukahlutverki hjá Manchester United.
The Independent segir að forráðamenn Inter hafi rætt við Nemanja Vidic, fyrrum samherja Kagawa hjá United, um að aðstoða í málinu.
The Independent segir að forráðamenn Inter hafi rætt við Nemanja Vidic, fyrrum samherja Kagawa hjá United, um að aðstoða í málinu.
Talið er að Louis van Gaal sé meira en tilbúinn í að selja Kagawa og sé reiðubúinn að hlusta á tilboð.
Kagawa var í byrjunarliði Manchester United sem tapaði 4-0 fyrir MK Dons í deildabikarnum í gærkvöldi.
Athugasemdir