Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 27. ágúst 2014 05:55
Jóhann Ingi Hafþórsson
Meistaradeildin í dag - Stórleikur Arsenal gegn Besiktas
Alexis Sanchez verður væntanlega í liði Arsenal á morgun.
Alexis Sanchez verður væntanlega í liði Arsenal á morgun.
Mynd: Getty Images
Fimm leikir eru á dagskrá í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í dag.

Hæst ber að nefna leik Arsenal og Besiktas sem er í beinni á Stöð 2 Sport. Fyrri leikur liðana endaði með markalausu jafntefli þar sem Aaron Ramsey var rekinn útaf og verður hann því ekki með í leiknum sem fram fer á Emirates.

Athetic Bilbao og Napoli eigast svo við á Spáni en fyrri leikurinn endaði 1-1 í hörkuleik og greinilegt er að gott lið mun sita eftir að þeirri viðurreign lokinni.

Danirnir í FC Kaupmannahöfn fara síðan til Þýskalands og eiga við Bayern Leverkusen.

Leikir dagsins
18:45 Arsenal - Besiktas (0-0) (Beint á Stöð 2 Sport)
18:45 Athletic Bilbao - Napoli (1-1)
18:45 Bayern Leverkusen - FC Kaupmannahöfn (3-2)
18:45 Malmö - Salzburg (1-2)
18:45 Ludogorets Razgrad - Steaua Bucharest (0-1)
Athugasemdir
banner
banner