Um síðustu helgi mættust tvö efstu lið 1. deildarinnar þegar topplið Leiknis mætti ÍA á Leiknisvelli. Skagamenn skoruðu eina mark leiksins í uppbótartíma úr umdeildri vítaspyrnu.
Hjörtur Hjartarson krækti í vítið en Garðar Gunnlaugsson fór á punktinn og skoraði.
Hjörtur Hjartarson krækti í vítið en Garðar Gunnlaugsson fór á punktinn og skoraði.
Langlíklegast er að þessi tvö lið fari saman upp en Leiknir getur tryggt sér sætið með sigri gegn Víkingi Ólafsvík á útivelli á föstudagskvöld.
Í sjónvarpinu hér að ofan má sjá það helsta úr leiknum á laugardag en hann var sýndur beint á SportTv.is og Adolf Ingi Erlingsson sá um lýsingu.
Athugasemdir