Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 27. ágúst 2014 11:28
Magnús Már Einarsson
U21 árs landsliðshópurinn - Einn nýliði
Elías Már Ómarsson.
Elías Már Ómarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eyjólfur Sverrisson.
Eyjólfur Sverrisson.
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið hópinn sem mætir Armenum og Frökkum í lokaleikjum riðlakeppni EM hjá U21 karla.

Leikið verður gegn Armenum á Fylkisvelli, miðvikudaginn 3. september og gegn Frökkum í Auxerre, föstudaginn 8, september.

Ísland er í öðru sæti riðilsins og er gott sem öruggt með það sæti en það gefur möguleika á umspili.

Þær fjórar þjóðir sem eru með bestan árangur af liðunum í öðru sæti riðlanna tíu, tryggja sér sæti í umspili og því er hvert stig dýrmætt í baráttunni. Það er því sérstaklega mikilvægt að styðja strákana á Fylkisvelli 3. september.

Einn nýliði er í hópnum að þessu sinni en það er Elías Már Ómarsson úr Keflavík.

Markmenn:
Rúnar Alex Rúnarsson, Nordsjælland
Frederik August Albrecht Schram, OB

Aðrir leikmenn:
Hörður Björgvin Magnússon, Cesena
Jón Daði Böðvarsson, Viking Stavanger
Guðmundur Þórarinsson, Sarpsborg
Emil Atlason, KR
Arnór Ingvi Traustason, Norrkoping
Andri Rafn Yeoman, Breiðablik
Hólmbert Friðjónsson, Celtic
Kristján Gauti Emilsson, Nijmegen
Sverrir Ingi Ingason, Viking Stavanger
Brynjar Gauti Guðjónsson, ÍBV
Emil Pálsson, FH
Hjörtur Hermannsson, PSV
Orri Sigurður Ómarsson, AGF
Árni Vilhjálmsson, Breiðablik
Aron Elís Þrándarson, Víkingur
Ásgeir Eyþórsson, Fylkir
Ólafur Karl Finsen, Stjarnan
Elías Már Ómarsson, Keflavík
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner