Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 27. ágúst 2014 22:13
Magnús Már Einarsson
Xabi Alonso á leið til Bayern
Xabi Alonso.
Xabi Alonso.
Mynd: Getty Images
Xabi Alonso, miðjumaður Real Madrid, er á leið til FC Bayern.

Spænskir og þýskir fjölmiðlar greina frá þessu í kvöld en talið er að kaupverðið hljóði upp á átta milljónir punda.

Alonso ku ætla að halda fréttamannafund eftir æfingu Real Madrid í fyrramálið þar sem hann mun útskýra af hverju hann er á förum frá félaginu.

Alonso mun fá harða samkeppni um sæti í liðinu hjá Bayern en Pep Guardiola þjálfari liðsins hefur úr nóg af miðjumönnum að velja.

Þar má meðal annars nefna Bastian Schweinsteiger, Thiago Alcantara, Javi Martinez sem og Philipp Lahm sem spilaði talsvert á miðjunni á síðasta tímabili. Martinez mun þó missa af stórum hluta tímabilsins vegna meiðsla.
Athugasemdir
banner
banner
banner