Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fim 27. ágúst 2015 20:14
Ívan Guðjón Baldursson
3. deild: Reynir gæti misst af öðru sætinu eftir jafntefli
Sigurjón Guðmundsson minnkaði muninn fyrir Kára.
Sigurjón Guðmundsson minnkaði muninn fyrir Kára.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Reynir S. 2 - 2 Kári
1-0 Jóhann Magni Jóhannsson ('12)
2-0 Scott Mckenna Ramsay ('54)
2-1 Sigurjón Guðmundsson ('68, víti)
2-2 Arnar Þór Hafsteinsson ('86)
Rautt spjald: Jóhann Magni Jóhannsson, Reynir ('91)

Reynir Sandgerði er í harðri baráttu um 2. sæti í 3. deildinni og þurfti sigur gegn Kára til að fjarlægjast Völsung í baráttunni.

Jóhann Magni Jóhannsson kom Reyni yfir snemma leiks og bætti Scott Mckenna Ramsay öðru marki við snemma í síðari hálfleik.

Sigurjón Guðmundsson minnkaði svo muninn úr vítaspyrnu áður en Arnar Þór Hafsteinsson jafnaði fyrir Kára undir lok leiksins.

Völsungur heimsækir fallbaráttulið Víðis á laugardaginn og getur með sigri þar komist yfir Reyni og í 2. sæti deildarinnar þegar aðeins tvær umferðir eru eftir.
Athugasemdir
banner
banner