Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 27. ágúst 2015 13:00
Elvar Geir Magnússon
Courtois: Pedro mun gera Hazard enn betri
Pedro í leiknum gegn West Brom.
Pedro í leiknum gegn West Brom.
Mynd: Getty Images
Thibaut Courtois, markvörður Chelsea, telur að sóknarmaðurinn Pedro sem kom frá Barcelona muni gefa Eden Hazard enn meira frjálsræði á miðsvæðinu.

Pedro skoraði og lagði upp í fyrsta leik sínum fyrir Chelsea sem var sigur gegn West Brom, 3-2, síðasta sunnudag.

„Maður hefur alltaf getað reiknað með því að þegar Eden fær boltann komi tveir til þrír andstæðingar strax að honum," segir Courtois.

„Nú þegar Pedro er kominn vita varnarmennirnir að þeir geta ekki bara einbeitt sér að Eden því þá getur Pedro nýtt sér svæði."

Chelsea hefur hikstað í upphafi tímabils og er með 4 stig að loknum þremur leikjum, liðið mætir Crystal Palace á laugardag.
Athugasemdir
banner