Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
banner
   fim 27. ágúst 2015 22:19
Ívan Guðjón Baldursson
Gunni Borgþórs: Ætluðum að gera eitt en gerðum annað
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Borgþórsson var svekktur eftir 3-0 tap Selfyssinga gegn Haukum í 1. deild karla.

Selfoss ógnaði lítið sem ekkert í fyrri hálfleik og skapaði sér nokkur færi í þeim síðari en sigur Hauka var aldrei í hættu.

Lestu um leikinn: Haukar 3 -  0 Selfoss

„Það var svo margt sem klikkaði. Við ætluðum að gera eitt en gerðum annað," sagði Gunni svekktur eftir leik.

„Við höfum verið að bæta sóknarleikinn og byggðum hann upp mjög svipaðan og í síðustu leikjum þar sem við höfum verið að skora og skapa mikið af færum.

„Haukavörnin stóð gríðarlega þétt og þeir voru mjög vel skipulagðir. Það var ekki fyrr en við settum Richard inná í seinni hálfleik að við fórum að ógna eitthvað."


Selfoss er í bullandi fallbaráttu og aðeins tveimur stigum frá fallsæti, en næsti leikur liðsins er gegn Gróttu og sá er gífurlega mikilvægur, enda helstu samkeppnisaðili Selfyssinga í fallbaráttunni.

„Við höfum allir trú á því að við getum haldið okkur uppi. Þetta verður barátta alveg fram í síðasta leik og við þurfum að fá nokkur stig í viðbót.

„Við þurfum að setjast yfir leikinn og skoða hann aðeins á vídjói og sjá hvað við getum gert betur."

Athugasemdir
banner
banner
banner