Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 27. ágúst 2015 11:00
Magnús Már Einarsson
Kevin Nolan farinn frá West Ham
Mynd: Getty Images
Kevin Nolan, fyrirliði West Ham, hefur komist að samkomulagi um starfslok hjá félaginu.

Hinn 33 ára gamli Nolan kom frá Newcastle sumarið 2011.

Síðan þá hefur Nolan skorað 31 mark í 157 leikjum með Hömrunum.

„Ég hlakka til að takast á við nýja áskorun hjá nýju félagi," sagði Nolan.

Nolan var í byrjunarliði West Ham gegn Bournemouth um síðustu helgi en var tekinn af velli í hálfleik. Það reyndist vera kveðjuleikur hans með West Ham.
Athugasemdir
banner
banner
banner