Norska liðið Odd Grenland heimsótti stórliðið Borussia Dortmund og tók góðan hóp stuðningsmanna með sér á leikinn.
Odd komst í 3-0 í fyrri leik liðanna í Noregi en tapaði 4-3 og komst svo aftur yfir á útivelli en endaði á að tapa 7-2, eða 11-5 samanlagt.
Odd komst í 3-0 í fyrri leik liðanna í Noregi en tapaði 4-3 og komst svo aftur yfir á útivelli en endaði á að tapa 7-2, eða 11-5 samanlagt.
Þrátt fyrir þungt tap skemmtu stuðningsmenn liðsins sér vel á leiknum, enda komu þeir ekki til að sjá sína menn sigra.
Myndband af látum stuðningsmanna Odd má sjá hér fyrir neðan, og ljóst er að eina sem stuðningsmennirnir vildu sjá var baráttuandi og leikgleði.
Athugasemdir