Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 27. ágúst 2015 21:08
Ívan Guðjón Baldursson
Sky: Lazar Markovic á leið til Fenerbahce á láni
Mynd: Getty Images
Lazar Markovic spilaði um helming leikja Liverpool á síðasta tímabili en það er ekki lengur pláss fyrir Serbann unga í leikmannahóp Brendan Rodgers sem hefur ákveðið að lána hann til Tyrklands.

Markovic, sem er 21 árs gamall, er á leið til Fenerbahce á lánssamning sem gildir út tímabilið og gengur þar til liðs við leikmenn á borð við Robin van Persie, Raul Meireles, Diego og Nani.

Sky og fleiri fréttamiðlar greina frá félagsskiptunum á Twitter.

Markovic gerði garðinn frægan hjá Partizan í Serbíu, var keyptur til Benfica og gerði góða hluti á sínu fyrsta tímabili þar og var fenginn til Liverpool fyrir 20 milljónir punda. Hann á 20 landsleiki að baki fyrir Serbíu þar sem hann hefur skorað 3 mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner