Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 27. ágúst 2015 19:27
Ívan Guðjón Baldursson
Svíþjóð: Glódís Perla og félagar jafna toppliðið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Glódís Perla Viggósdóttir og samherjar hennar hjá Eskilstuna United eru búnir að jafna topplið Rosengard með góðum sigri á Örebro í dag.

Glódís lék allan leikinn í þriggja manna varnarlínu Eskilstuna sem er búið að vinna þrjá leiki í röð eftir tap gegn Söru Björk Gunnarsdóttur og félögum í Rosengard fyrir þremur vikum.

Arna Sif Ásgrímsdóttir lék þá allan leikinn í varnarlínu Gautaborgar sem lagði Mallbacken af velli með einu marki gegn engu.

Gautaborg er í efri hluta deildarinnar, þrettán stigum frá fallsæti og tíu stigum frá evrópusæti.

Eskilstuna United 3 - 1 Örebro
1-0 O. Schough ('36)
1-1 J. Spetsmark ('45)
2-1 G. Enganamouit ('62)
3-1 S. Persson ('88)

Göteborg 1 - 0 Mallbacken
1-0 M. Melis ('57)
Athugasemdir
banner
banner
banner