Victor Wanyama ferðaðist ekki með Southampton til Danmerkur en liðið leikur gegn Midtjylland í forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld.
Ronald Koeman, stjóri Southampton, segir ástæðuna fyrir fjarveru Wanyama vera að kappinn glími við magapínu.
Wanyama óskaði eftir sölu frá félaginu á dögunum og gætu þessar fréttir ýtt undir sögusagnir um að hann hafi leikið sinn síðasta leik fyrir Dýrlingana.
Tottenham hefur áhuga á þessum 24 ára Keníumanni sem gekk til liðs við Southampton frá Celtic fyrir 12,5 milljónir punda árið 2013.
Koeman says @VictorWanyama has not travelled with the squad for tomorrow's game due to a stomach infection. #saintsfc
— Southampton FC (@SouthamptonFC) August 26, 2015
Athugasemdir