Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 27. ágúst 2016 18:06
Jóhann Ingi Hafþórsson
2. deild: KF hélt sér á lífi með sigri á KV
KF gat fagnað í dag
KF gat fagnað í dag
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
KF 1 - 0 KV
1-0 Jakob Auðun Sindrason ('45)

KF og KV mættust í 2. deildinni í dag. Með sigri gat KV svo gott sem sent KF niður í 3. deild.

Jakob Auðun Sindrason sá hins vegar um að halda lífi í KF með því að skora eina mark leiksins undir lok fyrri hálfleiks.

KV liðinu hefur gengið ansi illa undan farið og aðeins fengið eitt stig úr síðustu níu leikjunum og geta þeir hæglega fallið um deild.

KF er enn neðst í deildinni með níu stig eftir 18 leiki en KV er með 17 stig í 10. sæti.


Athugasemdir
banner
banner