Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 27. ágúst 2016 18:12
Jóhann Ingi Hafþórsson
Belgía: Sverrir Ingi og Ari Freyr spiluðu í sigri
Ari Freyr og Sverrir Ingi spiluðu báðir.
Ari Freyr og Sverrir Ingi spiluðu báðir.
Mynd: Kristján Bernburg
Lokeren 2 - 1 Royal Excel Mouscrom
1-0 Karim Essikal ('38, sjálfsmark)
2-0 Jaja ('79)
2-1 Filip Markovic ('90)

Lokeren vann sinn annan leik í belgísku úrvalsdeildinni í dag er þeir lögðu Royal Mouscrom af velli.

Ari Freyr Skúlason og Sverrir Ingi Ingason voru báðir í byrjunarliði Lokeren og spiluðu þeir allan leikinn.

Karim Essikal varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark í fyrri hálfleik og kom hann Lokeren yfir. Jaja bætti við í seinni hálfleiknum og var staðan orðin 2-0 og rúmlega tíu mínútur eftir.

Filip Markovic minnkaði muninn undir lokin en 2-1 sigur Lokeren var staðreynd.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner