Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 27. ágúst 2016 14:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Danny Rose: Hélt ég hefði klúðrað þessu
Danny Rose í leiknum í dag
Danny Rose í leiknum í dag
Mynd: Getty Images
„Jafntefli var líklega sanngjörn úrslit," sagði Danny Rose, vinstri bakvörður og markaskorari Tottenham, eftir 1-1 jafntefli gegn Liverpool í dag.

„Michel Vorm var líklega okkar besti maður í fyrri hálfleik, hann varði gríðarlega vel en mér fannst við spila miklu betur í seinni hálfleiknum."

Danny Rose skoraði jöfnunarmark Tottenham á 72. mínútu eftir að James Milner hafði komið Liverpool yfir í fyrri hálfleik. Rose segir að hann hafi tekið ákveðna áhættu í markinu sem hann skoraði.

„Í markinu sem ég skoraði þá tók ég áhættu en ég vildi ekki vera mikið að fara fram í leiknum vegna þess að hraðinn á (Sadio) Mane er óttalegur. Ég hélt ég hefði klúðrað þessu en boltinn fór inn og það er það eina sem skiptir máli."

Hér að neðan má sjá markið sem Rose skoraði í leiknum.



Athugasemdir
banner
banner
banner