Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 27. ágúst 2016 21:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Duwayne Kerr búinn að spila sinn síðasta leik fyrir Stjörnuna
Duwayne Kerr er að fara frá Stjörnunni
Duwayne Kerr er að fara frá Stjörnunni
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Duwayne Kerr, markvörður Stjörnunnar, hefur leikið sinn síðasta leik fyrir félagið en hann er á leiðinni til Chennaiyn í Indlandi.

Marco Materazzi, fyrrum varnarmaður Inter og ítalska landsliðsins, er þjálfari Chennaiyn en hann var staddur á Íslandi á dögunum til að semja við Kerr.

John Arne Riise samdi við Chennaiyn í gær en indverska ofurdeildin hefst eftir nokkrar vikur og stendur yfir í tæpa þrjá mánuði.

Fleiri félög í Indlandi vildu fá Kerr í sínar raðir en hann endaði á að semja við Chennaiyn.
Athugasemdir
banner
banner
banner