lau 27. ágúst 2016 16:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Goal 
Einkunnir úr Leicester - Swansea: Mahrez þristaður
Gylfi Þór Sigurðsson fær 4
Mahrez fann sig ekki í dag
Mahrez fann sig ekki í dag
Mynd: Getty Images
Englandsmeistarar Leicester City unnu sinn fyrsta sigur í ensku úrvalsdeildinni á þessu leiktímabili þegar liðið fékk Swansea í heimsókn í dag.

Jamie Vardy opnaði markareikning sinn á þessu tímabili á 32. mínútu og fyrirliðinn Wes Morgan setti annað markið 20 mínútum síðar. Leroy Fer náði að minnka muninn þegar tíu mínútur voru eftir, en lengra komst Swansea ekki og lokatölur 2-1 fyrir Leicester.

Gylfi Þór Sigurðsson spilaði allan leikinn hjá Swansea, en hann fær ekki góða einkunn fyrir frammistöðu sína. Riyad Mahrez hjá Leicester var þó slakastur í dag, en hann klúðraði vítaspyrnu.

Hér að neðan má sjá einkunnagjöfina frá Goal í heild sinni.

Einkunnir Leicester:
Kasper Schmeichel - 6
Danny Simpson - 5
Wes Morgan - 7
Robert Huth - 7
Christian Fuchs - 6
Marc Albrighton - 5
Danny Drinkwater - 8
Daniel Amartey - 7
Riyad Mahrez - 3
Shinji Okazaki - 7
Jamie Vardy - 7
(Zieler 6, Musa 5, Ulloa 5)

Einkunnir Swansea:
Lukasz Fabianski - 7
Kyle Naughton - 4
Jordi Amat - 3
Federico Fernandez - 5
Stephen Kingsley - 5
Gylfi Þór Sigurðsson - 4
Jack Cork - 5
Leroy Fer - 6
Wayne Routledge - 5
Fernando Llorente - 3
Modou Barrow - 6
(Ki 6, Montero 6)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner