Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   lau 27. ágúst 2016 20:27
Jóhann Ingi Hafþórsson
Mourinho: Viljum ekki byrja vel heldur enda vel
Jose Mourinho
Jose Mourinho
Mynd: Getty Images
„Við áttum þetta skilið og við hefðum átt að gera þetta þægilegra. Andlegi parturinn var frábær í dag," sagði Jose Mourinho, þjálfari Manchester United eftir 1-0 sigur á Hull í kvöld.

Marcus Rashford skoraði sigurmark United í uppbótartíma en hann kom inná sem varamaður.

„Marcus Rashford gefur liðum ný vandamál. Ég er mjög ánægður fyrir hans hönd og ánægður með liðið."

United hefur þá unnið alla þrjá deildarleiki sína eftir að Jose Mourinho tók við.

„Við viljum vera meistarar, við viljum ekki byrja vel, við viljum enda vel," sagði Portúgalinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner