Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 27. ágúst 2016 20:31
Jóhann Ingi Hafþórsson
Rashford: Legg mikið á mig fyrir svona augnablik
Rashford fagnar markinu í kvöld.
Rashford fagnar markinu í kvöld.
Mynd: Getty Images
Marcus Rashford, framherji Manchester United var ánægður eftir 1-0 sigurin á Hull City í dag en Rashford skoraði eina mark leiksins alveg undir lokin eftir að hafa komið inná sem varamaður.

Rashford var að spila sínar fyrstu mínútur í deildinni fyrir United á þessari leiktíð og lét hann svo sannarlega vita af sér.

„Það er partur af þessu að þurfa að vera á bekknum. Ég held bara áfram að leggja mikið á mig og maður gerir það fyrir augnablik eins og þetta."

„Það er frábært að vera í kringum svona góða leikmenn á hverjum degi og maður lærir mikið af þeim," sagði Rashford.
Athugasemdir
banner
banner