Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   lau 27. ágúst 2016 19:46
Jóhann Ingi Hafþórsson
Kópavogsvelli
Rúnar Páll: Fáum ekkert út úr því að spila vel
Rúnar Páll var svekktur í dag.
Rúnar Páll var svekktur í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
„Það var gríðarlega svekkjandi að fá þetta mark á sig í lokin. Við vorum að pressa á þá," sagði Rúnar Páll Sigmundsson eftir ansi svekkjandi 2-1 tap gegn Breiðablik í dag.

Höskuldur Gunnlaugsson skoraði sigurmakið í lokin en Eyjólfur Héðinsson braut þá á sér á miðjunni, Oliver Sigurjónsson tók aukaspyrnuna, beint á kollinn á Höskuldi sem skoraði með fallegum skalla.

Rúnar segir það hafa verið óþarfa að gefa aukaspyrnuna og er ósáttur með slaka einbeittingu hjá sínu liði.


Lestu um leikinn: Breiðablik 2 -  1 Stjarnan

„Þetta var óþarfi á þessum tímapunkti en aftur á móti eigum við að geta brugðist við því en við gerðum það ekki þar sem menn eru ekki einbeittir í því sem þeir eru að gera."

Stjarnan hefur aðeins fengið eitt stig úr síðustu fjórum leikjum sínum. Rúnar segir spilamennsku liðsins vera fína þrátt fyrir slæmt gengi.

„Við erum búnir að spila ágætlega þessa leiki og marga hverja mjög vel en við fáum ekkert út úr því."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner