Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 23. ágúst 2019 18:04
Auglýsingar
Skráning í sjö manna vetrardeildina í gangi
Frá Leiknisvelli.
Frá Leiknisvelli.
Mynd: Boladeildin
Búið er að opna fyrir skráningu í vetrardeildina tímabilið 2019/2020, um er að ræða sjö manna utandeild sem Leiknir í Breiðholti stendur fyrir. Leikið er á Leiknisvelli á nýju gervigrasi.

Skráning fer fram á [email protected].

Deildin verður leikin með sama sniði og í fyrra. 18 lið leika í 2 deildum (A og B deild). Það verða því 16 leikir á lið. Dregið verður í riðla í upphafi og þegar riðlakeppni klárast munu efstu 4 liðin leika í A deild og neðstu fjögur liðin leika í B-deild.

Þetta er gert til þess að gera keppnina jafnari og skemmtilegri til loka.

Krýndir verða meistarar bæði í A og B-deild. Þátttökugjald er 125.000 kr. - Greiða þarf staðfestingargjald fyrir skráð lið í síðast lagi föstudaginn 6. september að öðrum kosti verða tekin inn lið af biðlista.

Gjaldið er 35.000 kr. og fæst ekki endurgreitt ef lið hættir við þátttöku. Fullnaðargreiðsla verður svo að inna af hendi í síðasta lagi 11. okt.

Mótið hefst um miðjan okt og stendur allt fram til mánaðamóta mars/apríl. Almenna reglan er sú að leikið er um virka daga en ef frestanir eiga sér stað þarf stundum að koma þeim leikjum fyrir á varadögum sem eru sunnudagar. Reynt er að spila ekki ofan í allra stærstu leiki Meistaradeildarinnar. Leikmenn sem spila í Pepsi-deild eða 1. deild er ekki löglegir í Gull-deildinni. Liðin sem tóku þátt síðasta vetur hafa forgang í deildina til 31. ágúst.

Greiða þarf staðfestingargjald 35.000 kr fyrir 6. sept og fullnaðargreiðsla 90.000 kr. fyrir 11. okt. eða greiða allt 125.000 kr
KT-6904760299
Rn-537-26-16904

ATH-setja sem skyringu nafnið á liðinu og senda kvittun á [email protected].


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner