Leganes 0 - 0 Atletico Madrid
Atletico Madrid gerði í kvöld markalaust jafntefli við Leganes, nýliða spænsku úrvalsdeildarinnar.
Diego Godin skoraði í seinni hálfleik en hann var dæmdur rangstæður í leik sem hefur eflaust pirrað Diego Simeoni ansi mikið.
Atletico hefur illa af stað í deildinni og eru tvö stig úr fyrstu tveim leikjunum ekki það sem liðið ætlaði sér.
Leganes hefur hins vegar komið á óvart og er liðið með fjögur stig eftir þessa tvo fyrstu leiki.
Athugasemdir