banner
   þri 27. september 2016 19:22
Ívan Guðjón Baldursson
Twitter logar: Stóri Sam rekinn
Mynd: Getty Images
Sam Allardyce hefur hrökklast úr starfi sem þjálfari enska landsliðsins eftir að neyðarleg upptaka af honum var birt af Telegraph.

Í upptökunni heyrðist í Stóra Sam hrauna meðal annars yfir enska knattspyrnusambandið og er hann í kjölfarið atvinnulaus.

Viðbrögðin á Twitter hafa ekki verið af skornum skammti þar sem stór hluti knattspyrnuþenkjandi tístara hefur eitthvað um málið að segja.

Mikið er gert úr því að Sam sé með 100% sigurhlutfall og eru margir ósáttir með gildruna sem stjórinn var leiddur í þegar samtalið umtalaða var tekið upp.






























Athugasemdir
banner
banner
banner