Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 27. september 2017 22:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Neville: Luis Suarez er United leikmaður
Mynd: Getty Images
Þrátt fyrir flotta byrjun á þessu tímabili hjá Manchester United vill Gary Neville, fyrrum leikmaður liðsins, sjá meira. Hann telur að Luis Suarez og Antoine Griezmann væru fullkomnir fyrir liðið.

„Við getum orðið mikið betri," sagði Neville við Stretty News.
„Ég væri til í að sjá einn leikmann í viðbót sem er tæknilega góður."

„Ég væri til í að sjá kantmann sem gæti farið fram hjá öðrum leikmönnum og búið til spennu hjá fólki."

„Eftir að hafa verið á Spáni í fjóra mánuði, þá elska ég Griezmann. Ég myndi elska það að sjá Griezmann hjá United. Hann er fljótur, hann getur búið til, hann getur tekið menn á, hann getur skorað."

Neville talaði líka vel um Luis Suarez, sóknarmann Barcelona.

„Suarez, jafnvel þó að hann hafi spilað fyrir Liverpool, er United
leikmaður. Það er hrokafullt að segja það en hann er frábær. Hann skorar mörk, hann er áræðinn og eltir alla bolta."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner