Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 27. október 2016 08:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Arsene Wenger: Alex Iwobi er of stressaður
Iwobi hefur spilað vel í ár.
Iwobi hefur spilað vel í ár.
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger, þjálfari Arsenal segir Alex Iwobi, leikmann liðsðins þurfa að bæta sig í að klára færin.

Hinn tvítugi Iwobi hefur slegið í gegn á þessari leiktíð og spilað mjög vel, án þess þó að skora mörk en hann hefur leikið 11 leiki á leiktiðinni án þess að koma boltanum í netið.

„Hann er ekki dæmigerður vængmaður. Hann getur spilað í tíunni þar sem hann sendir boltann mjög vel. Hann er með allt til þess að leggja upp mörk."

„Eina sem vantar er að hann skori meira. Hann er líklegast of stressaður þegar hann fær færi til að klára þau," sagði Wenger.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner