Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 27. október 2016 23:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Mourinho: Stuðningsmenn United þeir bestu sem ég hef séð
Jose Mourinho er mjög ánægður með stuðninginn hjá United.
Jose Mourinho er mjög ánægður með stuðninginn hjá United.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, þjálfari Manchester United segir stuðningsmenn félagsins þá bestu sem hann hefur séð.

United tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum enska deildabikarsins í gær með 1-0 sigri á grönnum sínum í Manchester City en Juan Mata skoraði eina mark leiksins í seinni hálfleik.

Sigurinn var ansi mikilvægur fyrir United sem tapaði 4-0 fyrir Chelsea um helgina.

„Stuðningsmennirnir eru ótrúlegir, ég hef aldrei séð annað eins," sagði hann við Sky Sports.

„Ást fólksins á félaginu hættir ekki þó við töpuðum gegn Chelsea og þó síðustu þrjár leiktíðar hafa verið erfiðar," sagði Mourinho.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner