Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 27. október 2016 12:00
Magnús Már Einarsson
Portland framlengdi við Dagnýju
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Portland Thorns hefur nýtt sér ákvæði til að framlengja samninga við tíu leikmenn sína.

Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir er einn af þessum leikmönnum en hún var að ljúka sínu fyrsta tímabili með Portland.

Portland sigraði deildarkeppnina í NWSL en liðið tapaði síðan gegn Washington Spirit í framlengdum leik í undanúrslitum í úrslitakeppninni.

Dagný spilaði 18 leiki með Portland á tímabilinu og skoraði í þeim fimm mörk.
Athugasemdir
banner
banner