Neil Warnock, stjóri Crystal Palace, segir að það komi ekki til greina að selja kantmanninn Yannick Bolasie í janúar.
Bolasie var frábær í 3-1 sigrinum á Liverpool um síðustu helgi en Kongómaðurinn hefur sýnt lipra takta á tímabilinu.
Bolasie var frábær í 3-1 sigrinum á Liverpool um síðustu helgi en Kongómaðurinn hefur sýnt lipra takta á tímabilinu.
,,Hann fer ekki neitt í janúar. Það er ekki séns," sagði Warnock í dag.
,,Ég tel að hann eigi heima hjá Palace. Hjá svona félagi, á þessu sviði með þessa stuðningsmenn."
,,Nú snýst þetta um það hvort hann geti haldið stöðugleika. Við eigum þrjá leiki framundan á viku."
Athugasemdir