Heimild: BBC
Enska knattspyrnusambandið hefur ákært Dave Whelan, eiganda og stjórnaformann Wigan, fyrir rasísk ummæli í viðtali á dögunum.
Whelan lét umdeild ummæli falla í kjölfarið á ráðningu félagsins á Malky Mackay, sem legið hefur undir sviðsljósinu vegna umdeildra textaskilaboða sem hann lét frá sér. Voru ummæli Whelan ætluð til að verja ráðninguna.
Whelan hefur beðist afsökunar á ummælum sínum og sagði á dögunum að hann myndi segja af sér ef hann verði fundinn sekur af knattspyrnusambandinu vegna ummælanna.
Athugasemdir