Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 27. nóvember 2014 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Evrópudeildin í dag - Everton í opinni dagskrá
Tottenham tryggir sæti sitt í 32-liða úrslitum með sigri í kvöld.
Tottenham tryggir sæti sitt í 32-liða úrslitum með sigri í kvöld.
Mynd: Getty Images
Sömu sögu er hægt að segja um Everton sem gæti nægt jafntefli gegn Wolfsburg.
Sömu sögu er hægt að segja um Everton sem gæti nægt jafntefli gegn Wolfsburg.
Mynd: Getty Images
Fimmta umferð Evrópudeildarinnar er í kvöld þar sem 24 leikir eru á dagskrá í 12 riðlum.

Tveir leikir verða sýndir í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Fyrst er viðureign Wolfsburg og Everton í H-riðli sýnd í opinni dagskrá og að leik loknum hefst útsending á viðureign Tottenham gegn Partizan Belgrade.

Villarreal tekur á móti Borussia Mönchengladbach í toppbaráttu A-riðils og Torino mætir Club Brugge í toppbaráttu B-riðils.

Tottenham þarf sigur í kvöld til að tryggja sig í 32-liða úrslit og þá mætast Celtic og Salzburg í toppslag D-riðils.

PSV þarf jafntefli gegn Estoril til að tryggja sig í útsláttarkeppnina á meðan Feyenoord mætir Sevilla í toppslag G-riðils.

Everton og Wolfsburg heyja toppslag í H-riðli rétt eins og Sparta Prag og Napoli gera í I-riðli.

A-riðill:
20:05 Villarreal - B. M'Gladbach
20:05 Zurich - Apollon Limassol

B-riðill:
20:05 Torino - Club Brugge
20:05 HJK - Kaupmannahöfn

C-riðill:
20:05 Tottenham - Partizan Belgrade (Stöð 2 Sport)
20:05 Asteras Tripolis - Besiktas

D-riðill:
20:05 Celtic - Salzburg
20:05 Astra - Dinamo Zagreb

E-riðill:
16:00 Dynamo Moskva - Panathinaikos
20:05 Estoril - PSV

F-riðill:
20:05 Inter - Dnipro
20:05 St-Etienne - Qarabag

G-riðill:
18:00 Feyenoord - Sevilla
18:00 Rijeka - Standard Liege

H-riðill:
17:00 FC Krasnodar - Lille
18:00 Wolfsburg - Everton (Stöð 2 Sport OPIN dagskrá)

I-riðill:
18:00 Sparta Prag - Napoli
18:00 Slovan Bratislava - Young Boys

J-riðill:
18:00 Dynamo Kiev - Rio Ave
18:00 Álaborg - Steaua Bucharest

K-riðill:
18:00 Guingamp - Fiorentina
18:00 Dinamo Minsk - PAOK

L-riðill:
18:00 Lokeren - Legia Varsjá
18:00 Trabzonspor - Metalist Kharkiv
Athugasemdir
banner
banner