Færeyingar hoppa upp um heil 82 sæti á nýjum heimslista FIFA sem var kynntur í morgun.
Færeyingar unnu Grikki 1-0 á útivelli í undankeppni EM fyrr í þessum mánuði en það er ein bestu úrslit í sögu þeirra.
Færeyingar unnu Grikki 1-0 á útivelli í undankeppni EM fyrr í þessum mánuði en það er ein bestu úrslit í sögu þeirra.
Með sigrinum hoppaði liðið úr 187. sæti upp í 105. sæti á heimslistanum en Færeyingar eru meðal annars fyrir ofan Kanada í fyrsta skipti í sögunni og einungis þremur sætum á eftir Ástralíu.
Grikkir féllu niður um sjö sæti eftir tapið gegn Færeyingum og sitja nú í 25. sæti listans.
Sjá einnig:
Hetja Færeyinga: Íslensk félög geta hringt í mig
Athugasemdir