Heimild: Barcelona
Spænska stórliðið Barcleona hefur gefið það út að belgíski varnarmaðurinn Thomas Vermaelen muni ekkert leika með félaginu næstu fimm mánuðina.
Vermaelen gekk í raðir félagsins frá Arsenal í sumar fyrir 19 milljónir evra, en hann meiddist á Heimsmeistaramótinu í sumar og á enn eftir að spila sinn fyrsta leik fyrir Barcelona.
Búist var við honum aftur á völlinn í lok september, en endurkoma hans frestaðist. Í dag var síðan gefið út að hann hefði meiðst á læri á ný á æfingu og að hann þurfi að gangast undir aðgerð sem framkvæmd verður í Finnlandi.
Þessi öflugi varnarmaður hefur glímt við mikil meiðslavandræði á undanförnum árum og var hann dottinn úr byrjunarliði Arsenal á síðustu leiktíð.
Athugasemdir