Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 27. nóvember 2014 17:00
Magnús Már Einarsson
Orri Gunnarsson framlengir við Fram
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Orri Gunnarsson hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélagið sitt Fram.

Orri, sem er 22 ára gamall miðjumaður, var valinn besti leikmaður Fram á síðasta keppnistímabili af leikmönnum og þjálfurum meistaraflokks.

,,Þrátt fyrir ungan aldur hefur Orri spilað 54 leiki í úrvalsdeild og bikarkeppni með Fram og hann verður klárlega einn af lykilmönnum Fram á næstu árum," segir í yfirýsingu frá Fram.

,,Samningurinn er því fagnaðarefni fyrir félagið."

Framarar hafa misst þrettán leikmenn frá því á síðasta tímabili en í gær kom Einar Már Þórisson aftur til félagsins frá KV.
Athugasemdir
banner
banner