Veikindi herja á leikmenn Stoke fyrir leik liðsins gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á laugardag.
Asmir Begovic og Geoff Cameron mættu ekki á æfingu í morgun vegna veikinda.
Phil Bardsley fór síðan heim af æfingu veikur.
Asmir Begovic og Geoff Cameron mættu ekki á æfingu í morgun vegna veikinda.
Phil Bardsley fór síðan heim af æfingu veikur.
,,Þetta byrjaði hjá U21 árs liðinu okkar og við þurftum að hætta við æfingar þar til að halda leikmönnum frá aðalliðinu," sagði Mark Hughes stjóri Stoke.
Stoke er í 11. sæti í ensku úrvalsdeildinni með fimmtán stig, stigi á undan Liverpool.
Athugasemdir