Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 27. nóvember 2015 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Hart ekki með um helgina - Caballero vill sanna sig
Mynd: Getty Images
Joe Hart verður ekki með Manchester City um helgina þegar liðið fær Southampton í heimsókn. Hart meiddist í 1-0 tapi gegn Juventus í miðri viku.

Willy Caballero verður á milli stanganna í hans stað en Hart ætti að vera klár í slaginn von bráðar.

Caballero hefur spilað einn deildarleik fyrir Man City og átti ekki góðan leik er City tapaði 4-1 fyrir Tottenham.

„Það er gott tækifæri fyrir mig að fá að spila aftur, ég er að æfa af kappi og er klár fyrir helgina," sagði Caballero.

„Þegar maður spilar illa eða gerir mistök þá vonast maður aftur eftir að fá að spila annan leik til að sanna hvað maður getur. Vonandi tekst mér það um helgina."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner