Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 27. nóvember 2015 16:30
Magnús Már Einarsson
Heimir og Þorsteinn þjálfarar ársins hjá KÞÍ
Heimir Guðjónsson.
Heimir Guðjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, var verðlaunaður sem þjálfari ársins í efstu deild karla á aðalfundi knattspyrnuþjálfarafélagsins í gær. Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Breiðabliks, var valinn þjálfari ársins í efstu deild kvenna.

Ejub Purisevic (Víkingur Ó.), Birgir Jónasson (Álftanes) og Hans Sævarsson (FH) fengu viðurkenningu fyrir vel unnin störf við þjálfun yngri flokka.

Í tilefni af 45 ára afmæli Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands þá verður félagsmönnum okkar upp á léttar veitingar í kvöld, föstudaginn 27. nóvember.

Boðið verður upp á létt Tapas hlaðborð á efri hæð Sólon Bistro (Bankastræti 7a) og vel vel valdir skemmtikraftar láta sjá sig á svæðinu og gera grín að þjálfurum.

Partýið hefst kl 20:00 og stendur fram að miðnætti.

Enginn aðgangseyrir. Það eina sem að þú þarft að vera búinn að gera er að borga árgjaldið í félagið og að mæta með góða skapið.

Tilkynna þarf komu sína með tölvupósti [email protected]
Athugasemdir
banner